Fyrirtæki sem tileinka sér hringrásarhugsun geta dregið úr umhverfisáhrifum og á sama tíma aukið skilvirkni, minnkað kostnað og skapað ný tækifæri.
Hringrásarhagkerfið-
leið til verðmætasköpunar
Hvar byrja ég?
01
Fyrsta skrefið er að kortleggja úrganginn sem fellur til hjá þínu fyrirtæki
02
Get ég hannað burt úrganginn?
03
Get ég nýtt úrganginn sem myndast?
04
Hvernig getur mitt fyrirtæki eflt aðra í hringrásarhagkerfinu?
Finndu sóun og byrjaðu þar
Með því að setja á sig gleraugu úrgangsforvarna hjá fyrirtækinu má koma í veg fyrir sóun.
Rýnum hönnun og ferla og leitum leiða til að hanna burt úrgang í framleiðslunni. Skoðum það sem kemur inn og það sem fer út, erum við að kaupa óþarfa vörur eða hráefni?
Fyrirtæki sem ekki eru í vöruframleiðslu geta líka beytt úrgangsforvörnum með því að:
Afþakka / kaupa ekki hluti sem ekki er þörf á
Kaupa notað
Gera við
Leigja og nýta þjónustusamninga
Sleppa umbúðum eða minnka
Lengri líftími - minni sóun
Með því að horfa á líftíma hluta og reyna að lengja hann er hægt að koma í veg fyrir óþarfa sóun.
Með því að endurhugsa hvernig hlutir eru hannaðir, framleiddir og notaðir getum við sparað auðlindir, minna fer til spillis og hlutir fá lengra og betra líf.
Dæmi:
Hanna vörur með það í huga að hægt sé að gera við þær.
Ekki hafa reglu um að skipta út tölvubúnaði á X ára fresti í fyrirtækinu. Frekar að endurnýja búnað þegar þörf er á.
Hliðarstraumar
Það sem áður var talið úrgangur telst nú sem verðmæti. Skoðið hvaða úrgangur fellur til hjá ykkar fyrirtæki og rýnið tækifæri til fullnýtingar hliðarstrauma. Það getur minnkað kostnað og umhverfisáhrif.
Fjölmörg nýsköpunarfyrirtæki hafa átt farsælt samstarf með stærri fyrirtækjum í nýtingu hliðarstrauma. Mörg dæmi um slík fyrirtæki er að finna í sjávarútvegi og annarri matvælaframleiðslu.
Á Instagram Hringrásarklasans má sjá dæmi um nýsköpunarfyrirtæki sem vinna hörðum höndum að fullnýtingu hliðarafurða!
Hringræn viðskiptamódel
Með því að endurhugsa viðskiptamódelin okkar getum við fundið nýjar og fjölbreyttar leiðir til verðmætasköpunar.
Þetta getur falið í sér að hætta að selja vörur og selja þess í stað þjónustu.
Þá er eignarhald vörunnar áfram hjá fyrirtækinu og fyrirtækið þjónustar vörurnar hjá notendum.
Hægt er að leggja áherslu á að framleiða vörur af meiri gæðum sem seldar eru á hærra verði. Samhliða því að lengja ábyrgðartíma og jafnvel að fyrirtækið reki viðgerðaþjónustu fyrir vörurnar sínar.
Breytingar á viðskiptamódelum til að innleiða hringrásarhagkerfið ættu alltaf að fela í sér áherslu á gæði og líftíma.
Hringrásarhagkerfið byggir á því að endurhugsa hvernig við hönnum, framleiðum og nýtum hluti.
Með því að endurhugsa hvernig hlutir eru hannaðir, framleiddir og notaðir getum við sparað auðlindir, minna fer til spillis og hlutir fá lengra og betra líf.
Í dag byggir hagkerfið að stórum hluta á línulegu mynstri:
framleiða → nota → henda.
Til að tryggja lífsgæði komandi kynslóða þurfum við að endurhugsa þetta kerfi.
Hringrásarhagkerfið snýst um að halda auðlindum í notkun eins lengi og mögulegt er, draga úr sóun og skapa verðmæti á nýjan hátt.
Hver er ávinningurinn af því að starfa innan hringrásarhagkerfisins?
Hringrásarhagkerfið

